Kárahnjúkavirkjun var afar umdeild framkvæmd.
Þessi stífla veitir Jökulsá á Dal í Lagarfljót en það þýðir að á Jökuldal rennur engin á lengur. Heimamönnum finnst sjálfsagt ennþá undarlegt að árniðurinn sé horfinn. Og Lögurinn er víst enn drullugri en fyrr. Það er kannski engin furða að þjóðsaga eins og Lagarfljótsormurinn spretti upp.
Til að reisa stífluna þurfti að eyðileggja a.m.k. hluta af því, ef ekki allt Hafrahvammagljúfur. Það er eitt af mínum uppáhaldsorðum, Hafrahvammagljúfur. Það er sjálfsagt afar erfitt í framburði fyrir þá sem ekki tala íslensku að móðurmáli.
Posted January 12, 2012 at 6:11pm